úrkoma
Útlit
Íslenska
Fallbeyging orðsins „úrkoma“ | ||||||
Eintala | Fleirtala | |||||
án greinis | með greini | án greinis | með greini | |||
Nefnifall | úrkoma | úrkoman | —
|
—
| ||
Þolfall | úrkomu | úrkomuna | —
|
—
| ||
Þágufall | úrkomu | úrkomunni | —
|
—
| ||
Eignarfall | úrkomu | úrkomunnar | —
|
—
| ||
Önnur orð með sömu fallbeygingu |
Nafnorð
úrkoma (kvenkyn); veik beyging
- [1] Úrkoma er í veðurfræði þegar vatn á fljótandi eða föstu form sem fellur til jarðar úr skýjum og telst til veðurs. Föst úrkoma nefnist snjókoma eða ofankoma, en snjór þegar hún hefur náð jörðu. Skúrir eða él falla úr skúra-/éljaskýjum, súld eða frostúði úr þokuskýjum, en önnur úrkoma ýmist úr grábliku eða regnþykkni. (Flákaský gefa yfirleitt ekki úrkomu, þó stundum megi finna fyrir dropum undir þeim.) Tegund úrkomu er skráð og úrkomumagn mælt á mönnuðum veðurathugunarstöðvum, sem Veðurstofa Íslands rekur.
- Sjá einnig, samanber
- Tegundir úrkomu:
- regn eða rigning
- súld eða úði
- frostregn eða frostúði
- slydda
- snjókoma eða ofankoma
- ísnálar
- haglél
Þýðingar
[breyta]
þýðingar
- Tilvísun
„Úrkoma“ er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „úrkoma “